24október

Eigum við að ræða það eitthvað eða?!?



Jæja, er þessi síða ekki bara útdauð eða hvað?

24. október 2007 klukkan 23:57
Jenný Ágústa Abrahamsen
Engin athugasemd
22maí

Breytingar.

Jæja, komin tími á nýja færslu.

Já, það er margt að gerast hérna hjá mér þessa dagana.
Ég er hætt á mínum gamla vinnustað, þar sem ég fékk aðra frekar spennandi vinnu og byrja sem sagt á morgun. Þetta eru sko nýjir tímar hjá mér í átt að hamingju og meira afþreygingu, komin úr þessu stressi þar sem ég ætla bara að opinbera hér að ég hef greinst með ofþreytu og stress.
Komin tími á að vera bara ungur og leika sér meira á meðan maður getur í stað þess að vinna og vinna fyrir skuldum. Við lifum jú bara einu sinni víst.

Svo er hún Halldóra að koma aftur heim frá Ítalíu eftir að hafa dvalið þar í 2 vikur og kemur með óvæntan glaðning fyrir okkur hin. Já, hún kemur með Írisi okkar aftur til baka, þannig að núna munum við vera slétt tala í kotinu í stað oddatölu. Frábært það! Hlakka til að sjá þær, knúsa þær og kyssa Ullandi

Svo stakk mútta mín bara af úr landi..hehe.. en hún fór sem sagt í morgun til Færeyjar og mun búa þar í einn og hálfan mánuð. Sakna þín strax mútta! Saklaus
En ég kenndi henni að senda sms í gegnum farsímann hennar í gærkvöldi og hún hefur ekki stoppað að senda mér síðan, þannig að það er allt í góðum málum. Hitti hana næst á ættarmótinu stóra sem haldið verður í júlí til heiðurs lang-lang afa míns. Ekki mikið lengra í það. Það styttist í að það verður haldið ættarmót til heiðurs mér, maður er orðin svo gömul Glottandi en ætli maður þurfi ekki að eiga börn fyrst.

Svo er ég að fara í fjarnám í gegnum Versló í sumar og mun taka þar lögfræði og siðfræði mér til skemmtunar. Þannig að já, það verður frekar mikið að gera í sumar hjá mér.

En annars gengur bara allt voða vel hjá okkur í grafarholtinu.
Hlakka til sumarsins þó svo að það snjóaði hérna lítillega um daginn en við látum ekki það á okkur fá, við íslendingarnir sem eru svo vön öllum veðrum.

Hafið það gott.

22. maí 2007 klukkan 22:19
Jenný Ágústa Abrahamsen
3 athugasemdir
09maí

Ekkert frí

Jæja, þá er frí-ið cancel-að...
Ekkert frí fyrr en bara ég veit ekki hvenær...
Málið er það að ég er komin með nýja vinnu.. Mér til mikillar gleði. Ekkert illt meint. En maður þarf líka að skipta svona af og til. Hef náttla unnið á mínum "gamla" vinnustað í nær 4 ár. Þannig að ég held að þetta sé bara komið gott.
Og þarf ég að byrja í nýju vinnunni sem allra fyrst. En svona er þetta.

Dóra var að fara í morgun til Írisar sinnar og verður þar í 2 vikur. Öfunda hana fyrir að komast í sólina og að sjálfsögðu að hitta Írisi...

En hafið það gott...

Ps. hef ákveðið að blogga ekki neitt fyrr en ég fæ einhver komment!
09. maí 2007 klukkan 11:36
Jenný Ágústa Abrahamsen
1 athugasemd
23apríl

Köben..

Jæja, þá er ferðinni heitið til Köben núna í næsta mánuði..
Ætlum við hjónin að skella okkur í eina helgarferð þangað og hafa það svaka rómó vegna mikilla anna og fríleysis hjá okkur báðum. Kominn tími á að eyða smá fríi saman Ullandi 
Svo er það að sjálfsögðu Dubai í sumar.
Já, miklar breytingar framundan hjá okkur og mikið að gerast næstu mánuðina.

Hafið það super gott folks!
23. apríl 2007 klukkan 00:19
Jenný Ágústa Abrahamsen
1 athugasemd
15apríl

Reiði...

Einhver reiði og sársauki býr í manni þessa dagana...
15. apríl 2007 klukkan 00:29
Jenný Ágústa Abrahamsen
Engin athugasemd
07apríl

Gleðilega páska!!!

Gleðilega páska öll sömul!!! Koss
07. apríl 2007 klukkan 10:38
Jenný Ágústa Abrahamsen
Engin athugasemd
21mars

Prófalok... SAKNA ÞÍN!!!

Jæja....

Nú er minn heittelskaði í lokaprófum og brjálað að gera hjá honum.
Hann er að standa sig vel og gera góóóða hluti....

Siggi


Gangi þér ógó vel rúsímúsí mín.
Ég veit að þú getur þetta..

Ég sendi honum góða strauma um velgengi og ég vona að þið gerið það líka fyrir mig...Glottandi
21. mars 2007 klukkan 21:47
Jenný Ágústa Abrahamsen
Engin athugasemd
14mars


Þegar svona dagur rennur upp hjá manni er ekki mikið hægt að gera. Svona dagar sem það leggst allt þungt á manni að fá svona fréttir snemma dags.


Ég vil votta aðstandendum þeirra sem fórust í þessu hræðilegra sjóslysi sem átti sér stað í gærkvöldi í Ísafjarðardjúpi alla mína samúð.

Þetta er mjög sorglegt að missa þessa góðu sjómenn frá okkur en mikilvægt er að við stöndum saman eins og okkur ísfirðingum er einum lagið þegar eitthvað bjátar á.








Förum varlega og verum góð við hvort annað... ALLTAF!

14. mars 2007 klukkan 16:34
Jenný Ágústa Abrahamsen
Engin athugasemd
06mars

Pælingar...

Ég veit ekki hvað er málið með peninga og þjóðfélagið í dag!?! Einhver?

Nei, nei...

Stundum sit ég tímunum saman hérna inn í herberginu mínu og sit fyrir framan tölvuna og er að pæla í hinum og þessum málum, svona frekar lífinu eins og það er í heild sinni.
Ég á pantaðan tíma hjá lækni, en hvernig lækni skiptir ekki máli hér. Tilhugsunin að ég sé að fara til læknis eftir aðeins nokkra daga lætur mér líða illa. Ekkert að ég hafi neitt á móti læknum, þeir gera bara góða hluti, vonandi hversdagslega. En það sem hræðir mig mest er að heyra það versta. Sé hann fyrir mig ganga út úr stofunni og koma svo seinna aftur inn eftir korter eða svo og segir: ,,Ég held að ég hafi nú ekki góðar fréttir að færa".

Ég geri mér fulla grein fyrir því að ég er mjög ung og litlar líkur eru á að eitthvað hræðilegt gæti gerst þar sem ég hef nú bara alltaf verið mjög heilbrigður krakki fyrir utan það að ég  var mjög sein að læra hluti, eins og að ganga og sitja. En það hefur alveg skilað sér á hinn veginn með árunum.
Það er bara einhver tilhugsun um að heyra slæmar fréttir frá læknum sem hræðir mig. Kannski er það aldurinn sem segir til sín að maður er kannski meðvirkari um dauða, veikindi og annað slíkt sem er að gerast í heiminum í dag, ég veit ekki.

Ég reyki, ég drekk eiginlega rosalega oft, ég borð óhollan mat, hreyfi mig lítið (en tek það fram að vinnan sem er 12 tíma vaktir, þar er hreyft sig, hlupið og lyft þungum kössum).
Já, ég er eitthvað svo bitur út í lífið núna þessa dagana, eða er ég bara stressuð?

Er í pælingar-sjokki!...
06. mars 2007 klukkan 20:59
Jenný Ágústa Abrahamsen
1 athugasemd
16febrúar

...


I remember the day we met,
almost like a fairy tale,
kinda like Romeo and Juliet
I´m nver gonna forget.
Now me knees went weak

when you said "hi"

and then you held my hand

and looked me in the eyes

I almost died

deep inside

theirs so much love

that i dont understand

that I´ll never learn myself

I want to do what you want me to do

I want you and no one else

tell me how to make me yours.



I don´t know what to do

I can´t believe it´s true that

you can make me feel this way

I see it in your eyes

it made me realize

there´s something I´ve got to say

I just wanna tell you that I´m sorry

for all the things I´ve done to make you worry

and all the time I cared for you from the bottom of my heart

I will be yours if you´ll be mine

I will be there till the end of time

I will be with you until the day that I die

I´ll be yours

I´ve been around the world

and have seen a lot of boys

but no one can compare to you

It´s really plain to see

that you belong to me

Cause you´re the only one I need.

16. febrúar 2007 klukkan 02:38
Jenný Ágústa Abrahamsen
Engin athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Jenný Ágústa Abrahamsen
  • Staður: Reykjavík
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: leikari og með því...
  • Hjúskaparstaða: í pikk-föstu sambandi
  • Um mig: Ég er dökkhærð með stór brún augu... og er alveg brjálæðislega rugluð og skemmtileg!!!
  • Annað: hmmm.... á einhver bjór?

Auglýsing

Klukkan

Innskráningar kubbur